NOTANDANAFN

LYKILORÐ
Landbúnaður.is
Matvælastofnun - MAST
Bændasamtök Íslands
 

Velkomin(n) á heimasíðu MARKs - einstaklingsmerkinga búfjár.

Ath. Nú fer öll skráning fyrir nautgriparækt fram í Huppu, Afurða- og skýrsluhaldskerfi í nautgriparækt - www.huppa.is

Hinn 11. júní 2003 tók gildi reglugerð um einstaklingsmerkingar búfjár nr. 289/2005. Reglugerðin er sett með stoð í lögum um búfjárhald nr. 103/2002, lögum um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr nr. 66/1998 og lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim nr. 25/1993. Hægt er að nálgast reglugerðina í heild á vefslóðinni www.reglugerd.is.

Tölvukerfið MARK er þróað af tölvudeild Bændasamtaka Íslands í samvinnu við landbúnaðarráðuneytið og Embætti yfirdýralæknis sem er eftirlitsaðili með einstaklingsmerkingum búfjár. Hlutverk MARKs er að halda utan um þessar merkingar. Í því eru geymdar þær grunnupplýsingar sem búfjáreigendum er skylt að koma á framfæri vegna búfjár sem þeir halda.

Eitt megin hlutverk einstaklingsmerkinga er að tryggja rekjanleika búfjárafurða en einnig treysta þær ættfærslur verulega. Þá verður skráning heilsufarsupplýsinga búfjár og lyfjanotkunar hluti af MARK. Tölvukerfið MARK gerir það að verkum að grunnupplýsingar um búfé (nautgripi, hross, svín og alifugla) verða aðgengilegar á einum stað. Þannig eru gagnagrunnar búfjárskýrsluhaldsins hluti af MARK.

Þeir bændur, sem hafa ekki þegar fengið aðgang að MARK, þurfa að sækja um aðgang hjá tölvudeild Bændasamtakanna og skrá sig síðan inn í gegnum aðgerðina - Nýr notandi - hér til vinstri.

Vinsamlegast athugið að bufe.is er hannað í Internet Explorer og styður ekki aðra vafra.

Bændasamtök Íslands
Tölvudeild
Simi: 563 0300
Netfang: mark@bondi.is